Fjármálaskólinn fyrir kennara

Vefsíða Fjármálaskólans styður við bókina Hvað kosta ég? Hér má finna upplýsingar, myndbönd og reiknivélar sem gagnast ungu fólki sem vill læra um fjármál og ábyrga meðhöndlun peninga. Í bókinni er fjöldi verkefna og umræðuefna sem vekja áhuga og auka skilning nemenda á fjármálum. 

Undir liðnum Hvað viltu vita? eru skýringar á hugtökum tengdum fjármálum og þar sem við á eru reiknivélar og myndbönd tengd efninu. Einnig er hægt að nálgast reiknivélarnar og myndböndin beint af forsíðu. 

Hvað segir unga fólkið? gefur þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjármálum tækifæri á að tjá sig. 

Fjármálaskólinn býður einnig upp á sérstök námskeið fyrir kennara sem vilja auka enn frekar við skilning sinn.